VIRK ráðgjafar í Eyjafirði

Fjórir ráðgjafar eru starfandi fyrir sjúkrasjóði stéttarfélaganna í Eyjafirði; Helga Þyri, Katla, Kristín og Nicole. Ráðgjafar VIRK eru starfmenn VIRK, en starfa fyrir öll stéttarfélög á svæðinu, og hafa aðsetur á skrifstofu Einingar-Iðju á 2. hæð í Alþýðuhúsinu á Akureyri. Hægt er að ná í ráðgjafana í síma 535 5700. 

  • Nicole er með fasta viðveru á skrifstofu Einingar-Iðju á Dalvík einu sinni í viku.
  • Helga Þyri er með fasta viðveru á skrifstofu Einingar-Iðju í Fjallabyggð einu sinnu í viku.

Ágúst Sigurður Óskarsson starfar sem Atvinnulífstengill hjá VIRK og starfar fyrir öll stéttarfélög á Eyjafjarðarsvæðinu. Hann er með aðsetur á skrifstofu FVSA á 3. hæð í Alþýðuhúsinu á Akureyri í einn til tvo daga í viku.

Þjónusta VIRK

er fyrir einstaklinga sem búa við skerta starfsgetu vegna heilsubrests og stefna að aukinni þátttöku á vinnumarkaði. 

Tilgangur þjónustu VIRK er að aðstoða fólk við að komast aftur í vinnu. Um er að ræða markvissa ráðgjöf sem snýr að starfsendurhæfingu og krefst fullrar þátttöku viðkomandi einstaklings. Þjónustan er ferli sem felur í sér greiningu á stöðu og möguleikum eftir verkferlum VIRK.

Á vegum VIRK starfa sérhæfðir ráðgjafar í starfsendurhæfingu sem eru staðsettir hjá stéttarfélögum víða um land.  VIRK starfar einnig í nánu samstarfi við stéttarfélög, atvinnurekendur, ýmsa þjónustuaðila í starfsendurhæfingu og stofnanir velferðarkerfisins.

Þjónusta VIRK er einstaklingum að mestu að kostnaðarlausu. 

Til að eiga rétt á þjónustu þarf einstaklingur að vera með vottaðan heilsubrest frá lækni í formi vottorðs eða Beiðni læknis um þjónustu hjá VIRK.