Ferðaávísun og frístundakort

Á orlofsvef félagsins geta félagsmenn keypt ferðaávísun sem tryggir bestu kjörin á gistingu á hótelum og gistiheimilum um allt land. Þar er einnig hægt að kaupa niðurgreidd veiðikort og útilegukort

Ferðaávísun

Við bjóðum félagsmönnum okkar að kaupa ferðaávísun sem tryggir bestu kjörin á gistingu á hótelum og gistiheimilum um allt land. Eingöngu til sölu á orlofsvef félagsins!

Stéttarfélögin sem eiga aðild að Frímann-kerfinu sameinuðu krafta sína og komust að samkomulagi við fjölmörg hótel og gistiheimili víðs vegar um landið. Þau hafa boðið félagsmönnum okkar afar hagstætt verð. Í ofanálag niðurgreiðum við gistinguna um 20% af valinni upphæð. Niðurgreiðslan getur að hámarki verið 15.000 krónur á hverju almanaksári.

Félagsmenn skrá sig inn á orlofsvefinn og kaupa þar ferðaávísun sem gildir á tugum hótela og gistiheimila í öllum landsfjórðungum, án þess að festa dagsetningu dvalarinnar. Þeir velja upphæð ávísunarinnar og greiða fyrir. Þeir bóka því næst gistingu á þeim stað sem þeim hugnast en herbergi, þjónusta og verð er breytilegt á milli gististaða. 

Nú er líka hægt að nota ferðaávísunina upp í gönguferðir, en búið er að semja við Ferðafélag Íslands, Útivist og Fjallafjör um að taka við Ferðaávísun stéttarfélagana. Félagsmenn njóta sérkjara á völdum ferðum en einnig má nota Ferðaávísun upp í hvaða ferð sem er á vegum þessara fyrirtækja.

Ef svo háttar að umrætt hótel eða gistiheimili er fullt, eða ef ferðaáætlunin tekur breytingum þegar nær ferðinni dregur, er hægt að nota ávísunina hjá hvaða samstarfsaðila sem er, hvenær sem gistipláss er laust og með hvaða tilboði sem er. Þannig hafa félagsmönnum verið tryggð bestu hugsanlegu kjör og útilokað að þeir fari á mis við betri tilboð, til dæmis þegar líður á komandi sumar.

Sértilboð fyrir stéttarfélög

Þegar farið er inn á orlofsvefinn, og smellt á „Ferðaávísun“, opnast síða þar sem hægt er að skoða þau fjölmörgu tilboð á gistingu sem félagsmönnum standa til boða. Í boði er allt frá einfaldri gistingu á litlum gistiheimilum upp í vegleg hótelherbergi með fullri þjónustu og dýrindis morgunverði. Einnig er hægt að velja upphæð að eigin vali, til dæmis 5.000 eða 15.000 krónur, og nota hvar sem er þegar land er lagt undir fót. Ávísunin veitir aðgang að bestu tilboðum þessara hótela og gistiheimila. Valið er þitt.

Hér fyrir neðan má finna nokkrar spurningar og svör um þessa nýju ferðaávísun.

Hvað er ferðaávísun?

  • Ferðaávísun er inneign, sem þú getur notað til að greiða fyrir gistingu hjá einhverjum af fjölmörgum samstarfsaðilum okkar. Þú ert ekki skuldbundinn til að nota ávísunina á tilteknu hóteli/gistiheimili, eftir að hún hefur verið keypt. Upphæðina getur þú notað hjá hvaða samstarfsaðila okkar sem er.

Hvers vegna ætti ég að kaupa ferðaávísun?

  • Vegna þess að hótelkeðjur og gistiheimili hafa boðið félagsmönnum stéttarfélaganna, í krafti fjölda þeirra, betri tilboð en hægt er að fá á almennum markaði.

Hvar sé ég hvaða tilboð eru í boði?

  • Á orlofsvefnum geturðu skráð þig inn, eins og þegar þú sækir um orlofshús, og valið „Ferðaávísun“. Þá ferð þú yfir á síðu þar sem allar upplýsingar koma fram. Hvert hótel eða gistiheimili getur verið með mörg tilboð, eftir gerð herbergis eða innifalinni þjónustu.

Þarf ég að binda mig við tiltekið hótel?

  • Nei, þú pantað þér gistingu hjá hvaða samstarfsaðila sem er, og notað ferðaávísunina sem greiðslu.

Hvernig get ég treyst því að það komi ekki fram betri tilboð eftir að ég hef keypt ferðaávísun?

  • Ef sá gististaður sem þú velur þér lækkar verð í millitíðinni, þá fullnýtir þú ekki ávísunina. Það er ein af lykilforsendum þessa samstarfs, að ávísunin gildi með öllum öðrum tilboðum hótelanna. Með þessu verður fylgst náið. Gott er að fylgjast með gildistíma þeirra tilboða sem þú hefur augastað á.

Hvar kaupi ég ferðaávísunina og hvernig nálgast ég hana?

  • Þú ferð inn á orlofsvef þíns stéttarfélags og smellir á „Ferðaávísun“. Þú velur upphæð ávísunarinnar og greiðir fyrir með greiðslukorti. Ávísunin verður á þínu svæði á orlofsvefnum. Þú þarft aðeins að gefa upp kennitöluna þína þegar þú mætir á staðinn. Þú þarft ekkert að hafa með þér.

Hvernig nota ég ferðaávísunina?

  • Þegar þú mætir á áfangastað gefur þú upp kennitölu þína. Þú þarft engu að framvísa öðru en persónuskilríkjum.

Get ég fengið ávísunina endurgreidda?

  • Já, þú getur fengið ferðaávísunina endurgreidda. Þú færð þá til baka sömu upphæð og þú lagðir út. Hafi punktar verið teknir af þér við kaup á ferðaávísun, þá fást þeir líka endurgreiddir.

Ég hef notað hluta ferðaávísunarinnar, get ég fengið restina til baka?

  • Já, þú getur alltaf fengið þann hluta endurgreiddan sem ekki hefur verið nýttur. Endurgreiðslan verður í réttu hlutfalli við útlagðan kostnað þinn.

Rennur ávísunin út?

  • Nei, hún rennur aldrei út og þú getur sótt um endurgreiðslu hvenær sem er, á þínu svæði á orlofsvefnum.

Ég hef ekki aðgang að tölvu eða snjallsíma eða er ekki með rafræn skilríki. Hvernig get ég keypt ferðaávísun?

  • Ekki hika við að hafa samband við skrifstofu félagsins ef þig vantar aðstoð. Við hjálpum þér með ánægju og reynum að leysa málin.

Útilegukortið sumarið 2024

Útilegukortið gildir á viðkomandi tjaldsvæðum á meðan tjaldsvæðin eru opin fyrir almenning út árið 2024, en þó ekki lengur en til 15. september. Kortið veitir tveim fullorðnum og fjórum börnum undir 16 ára aldri fría gistingu á tjaldsvæðum samstarfsaðila Útilegukortsins í allt að 28 gistinætur á hverju starfsári þess. Engin takmörk eru fyrir því hve oft má koma á hvert tjaldsvæði innan gistináttanna 28 en einungis má gista í fjórar nætur samfellt í hvert skipti. Útilegukortið gildir fyrir tjöld, tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi og húsbíla.

Ath! gistináttaskattur er ekki innifalinn í Útilegukortinu.

Kortið verður eingöngu til sölu á orlofsvef félagsins! Athugið að gott er að panta með góðum fyrirvara. Það getur tekið allt að viku, jafnvel rúmlega það, að fá kort með póstinum. 

Allar upplýsingar um kortið má fá á vefsíðunni www.utilegukortid.is

Veiðikortið sumarið 2024

Veiðikortið er mjög hagkvæmur valkostur sem hentar jafnt veiðimönnum sem fjölskyldufólki. Með Veiðikortið í vasanum er hægt að veiða nær ótakmarkað í 36 veiðivötnum víðsvegar um landið sem og tjalda endurgjaldslaust við mörg þeirra.

Kortið verður eingöngu til sölu á orlofsvef félagsins! Athugið að gott er að panta með góðum fyrirvara. Það getur tekið allt að viku, jafnvel rúmlega það, að fá kort með póstinum. 

Allar frekari upplýsingar og lista um veiðisvæði má nálgast á www.veidikortid.is