Aðalfundur félagsins 2023

Mánudaginn 24. apríl 2023 fer fram aðalfundur Einingar-Iðju. Fundurinn hefst kl. 19:30 og verður í HOFI á Akureyri. Félagar, fjölmennum á fundinn! 

Veitingar í boði.

ATH! Boðið verður upp á akstur til Akureyrar

  • Siglufjörður, rúta kl. 18:00, frá skrifstofunni Eyrargötu 24b
  • Ólafsfjörður, rúta kl. 18:15, frá Tjarnarborg
  • Dalvík, rúta kl. 18:30, frá skrifstofunni Hafnarbraut 5.
  • Þeir sem ætla að fá far með rútunni verða að láta vita í síma 460 3600 fyrir kl. 13 sama dag og fundurinn fer fram.
  • Grenivík, heyrið í svæðisfulltrúa eða varasvæðisfulltrúa.
  • Hrísey, heyrið í svæðisfulltrúa eða varasvæðisfulltrúa.
  • Hringið fyrir kl. 13, sama dag og fundurinn fer fram, til að sameinast í bíla.

Dagskrá

  1. Venjuleg aðalfundarstörf
  2. Kosning 41 fulltrúa á ársfund Stapa lífeyrissjóðs
  3. Önnur mál.