Dalvík - kynning á nýjum kjarasamningi við sveitarfélögin

Björn Snæbjörnsson, formaður félagsins, mun kynna nýjan kjarasamning við sveitarfélögin á fjórum fundum 27. og 29. janúar.

Fundurinn á Dalvík verður miðvikudaginn 29. janúar kl. 17 í safnaðarheimili Dalvíkurkirkju. 

Sýnum ábyrga afstöðu! Mætum og kynnum okkur samninginn áður en við greiðum atkvæði.

Rafræn atkvæðagreiðsla stendur yfir frá kl. 12 mánudaginn 3. febrúar til kl. 12 sunnudaginn 9. febrúar

Allir sem starfa eftir samningnum fá sendan kynningarbækling frá SGS.