Grenivík - kynning á nýjum kjarasamningi við sveitarfélögin

Björn Snæbjörnsson, formaður félagsins, mun kynna nýjan kjarasamning við sveitarfélögin á fjórum fundum 27. og 28 janúar.

ATHUGIÐ!
Búið var að auglýsa fund kl. 20:00 næsta mánudag en vegna íbúafundar með ráðherra á sama tíma var ákveðið að Björn formaður muni segja frá samningum á eftirfarandi stöðum fyrr um daginn.

  • Leikskólinn kl. 13:00
  • Grenilundur kl. 13:45
  • Grunnskólinn kl. 14:30

Sýnum ábyrga afstöðu! Mætum og kynnum okkur samninginn áður en við greiðum atkvæði.

Rafræn atkvæðagreiðsla stendur yfir frá kl. 12 mánudaginn 3. febrúar til kl. 12 sunnudaginn 9. febrúar

Allir sem starfa eftir samningnum fá sendan kynningarbækling frá SGS.