Leikhúsferð fyrir lífeyrisþega félagsins

Félagið hefur ákveðið að bjóða félagsmönnum sem eru lífeyrisþegar á leikritið Dagbók Önnu Frank sem verið er að sýna í Freyvangsleikhúsinu.

  • Sýningin verður laugardaginn 7. mars og hefst kl. 15:00.
  • Rútuferð frá Alþýðuhúsinu á Akureyri kl. 14:30
  • Boðið verður upp á kaffiveitingar í hléi
  • Akstur í boði frá Fjallabyggð, Dalvík og Grenivík
  • Athugið! Um takmarkað sætaframboð er að ræða
  • Vinsamlegast skráið ykkur sem fyrst á skrifstofum félagsins eða í síma 460 3600 (Takið fram ef þið eruð utan Akureyrar, upp á bílfar að gera)