Sjúkrasjóður og fræðslusjóðir - skilafrestur umsókna

Reglur um skil á umsókn og gögnum til sjúkrasjóðs Einingar-Iðju og vegna fræðslusjóða félagsins

Vinsamlegast athugið!

Fundur er haldinn í stjórn sjúkrasjóðs Einingar-Iðju einu sinni í mánuði. Umsóknir og Gögn sem leggja á fyrir fund þurfa að hafa borist til skrifstofunnar í síðasta lagi 24. hvers mánaðar. ATH! breytilegt er milli ára hvenær skila þarf gögnum í febrúar og desember.

ATH! Í febrúar 2023 þarf að skila inn gögnum í síðasta lagi 20. febrúar 

Umsóknir um allar greiðslur úr sjúkrasjóði eru lagðar fyrir fund þ.m.t. dagpeningar, endurgreiðslur vegna sjúkraþjálfunar, sjúkranudds, krabbameinsleitar og allra styrkja sem greiddir eru skv. reglugerð sjóðsins.

Það sama gildir vegna skila á umsókn og gögnum til fræðslusjóða félagsins. Ekki er hægt að ábyrgjast greiðslu um næstu mánaðamót ef umsókn eða gögn koma eftir 24. hvers mánaðar. ATH! Í febrúar þarf að skila gögnum í síðasta lagi 20. febrúar.

ATHUGIÐ! Við hvetjum félagsmenn til að sækja rafrænt um styrki inn á Mínum síðum Einingar-Iðju

Hér má sjá reglur um skil á læknisvottorði