Dagsferð eldri félagsmenn 2024

Hin árlega eins dags ferð fyrir aldraða Einingar-Iðjufélaga verður farin þriðjudaginn 2. júlí 2024.

Lagt verður af stað frá Akureyri kl. 9:00 og ekið austur til Húsavík. Þaðan verður haldið Tjörnesið austur í Ásbyrgi og svo verður farið upp að Dettifossi að sunnan. Þaðan haldið í Mývatnssveit og síðan til Akureyrar. Snæddur verður hádegisverður í nágrenni Ásbyrgis og kaffi drukkið á Laugum

Ferðin kostar kr. 8.000 á mann. (Greitt er í rútu)

Skráning í ferðina hefst miðvikudaginn 3. janúar 2024 á skrifstofum félagsins á Akureyri, á Dalvík og í Fjallabyggð, í síma 460 3600 eða með því að senda póst á netfangið ein@ein.is