Fulltrúaráðsfundur Stapa lífeyrissjóðs

Stjórn Stapa boðaði til rafræns fundar fulltrúaráðs fimmtudaginn 11. apríl 2024 kl. 16:30. Félagið á rétt á að senda 41 fulltrúa á fundinn og hafa þeir verið boðaðir á hann.

Samkvæmt grein 3.7 í samþykktum skal stjórn sjóðsins kalla saman fulltrúaráðið tvisvar á ári, að hausti og í aðdraganda ársfundar þar sem málefni sjóðsins eru rædd. Um hlutverk og starfsemi fulltrúaráðs að öðru leyti vísast í kjarasamninga.

Fulltrúaráðið er skipað þeim sem tilnefndir voru á ársfund sjóðsins þann 2.maí 2023 sem fulltrúar þeirra aðildarfélaga, sem að sjóðnum standa.

Aðilar í fulltrúaráði frá ársfundinum eða varamenn þeirra hafa atkvæðisrétt á fulltrúaráðsfundum.

Drög að dagskrá fundarins eru eftirfarandi:

  1. Setning fulltrúaráðsfundar
  2. Lykiltölur úr afkomu
  3. Starfskjarastefna
  4. Staðfesting tilnefninga í stjórn
  5. Umfjöllun um breytingar á samþykktum
  6. Önnur mál

Boðaðir fulltrúar fá sendan hlekk á fundinn.