Breyting á reglum Landsmenntar

Á fundi stjórnar Landsmennt var samþykkt að einstaklingur geti átt uppsafnaðan rétt til tveggja ára eins og til þriggja ára. Þá var einnig tekin ákvörðun í stjórn sjóðsins að hækka hlutfall einstaklingsstyrkja úr 80% í 90%, þó að hámarki kr. 130.000 á ári. Tóku þessar breytingar á reglum gildi þann 1. janúar sl. 

Ný regla
Félagsmenn sem ekki hafa nýtt sér rétt sinn síðustu tvö ár eiga rétt á styrk allt að kr. 260.000,-  eða síðustu þrjú ár eiga rétt á allt að kr. 390.000,- eins og verið hefur fyrir eitt samfellt nám eða námskeið samkvæmt nánari reglum sjóðsins. Uppsafnaður réttur skerðist ekki hafi félagsmaður fengið styrk undir kr. 50.000,- á tíma uppsöfnunar. Sá styrkur kæmi þó til frádráttar frá hámarki.

Einstaklingsstyrkir
Hlutfall einstaklingsstyrkja hækkar úr 80% í 90% en hámark heldur sér í kr. 130.000.

Fyrirtækjastyrkir - sjá nánar á Áttin.is
Hlutfall styrkja hækkar úr 80% í 90%.
Þak á hámarksgreiðslur styrkja til fyrirtækja hækkar úr 3 mkr. á ári í 4 mkr.

Breytingar gilda frá 1. janúar 2024 og gildir gagnvart námi/námskeiðum sem byrja eftir þann tíma.