Skil á umsóknum og gögnum í febrúar 2024

Í febrúar 2024 þarf að skila inn umsóknum og gögnum fyrr en venjulega til sjúkrasjóðs Einingar-Iðju og vegna fræðslusjóða félagsins.

Greiðsla dagpeninga og styrkja vegna febrúarmánaðar 2024 fer fram á hefðbundnum tíma en það þarf að skila gögnum til félagsins í síðasta lagi fimmtudaginn 22. febrúar nk. til að ná þessari útborgun. Það sem kemur inn eftir þann tíma verður greitt mánuði síðar.

ATHUGIÐ! Við hvetjum félagsmenn til að sækja rafrænt um styrki inn á Mínum síðum Einingar-Iðju

Hér má sjá reglur um skil á læknisvottorði