Læknisvottorð

Reglur um skil á læknisvottorði

Athygli er vakin á breyttum reglum hjá Sjúkrasjóði Einingar-Iðju um skil á læknisvottorðum. Með þessu er verið að betrumbæta þær reglur sem þegar hafa verið í gildi í mörg ár.

  1. Umsókn um sjúkradagpeninga skjal fylgja ljósrit af læknisvottorði frá lækni, upprunnið í tölvukerfum heilsugæslunnar og spítalanna.
  2. Fyrsta vottorð þarf að vera íslenskt læknisvottorð. Framhaldsvottorð (vottorð vegna endurnýjunar/framlengingar) mega vera af erlendum toga en þurfa að vera ítarleg og innihalda sambærilegar upplýsingar og læknisvottorð. Ef þau eru á erlendu tungumáli þarf að fylgja þýðing yfir á íslensku eða ensku gerð af löggiltum skjalaþýðanda. (ATH! Einnig er hægt að sækja um sjúkradagpeninga til Sjúkratrygginga Íslands, en þar þarf að skila inn sjúkradagpeningavottorði)
  3. Heimilt er að skila erlendu fyrsta vottorði ef félagsmaður veikist skyndilega í fríi erlendis. Félagsmaður getur þurft að færa sönnur fyrir því að um fyrirfram ákveðið frí erlendis hafi verið að ræða.
  4. Stjórn sjúkrasjóðs Einingar-Iðju þarf að samþykkja öll erlend læknisvottorð sem móttekin eru undir skilyrðum í lið 2) og 3). Úrskurður stjórnar er endanlegur. 

Þessar reglur taka gildi frá og með 1. desember 2023.