Félagið

Laugardaginn 15. maí 1999 var formlega gengið frá samruna Verkalýðsfélagsins Einingar og Iðju, félags verksmiðjufólks á Akureyri. Félaginu var valið nafnið Eining-Iðja. Þótt þetta sameinaða félag eigi sér þannig séð ekki langa sögu stendur það á gömlum merg því félögin eiga sér hvort um sig langa og merka sögu í baráttu verkafólks fyrir réttindum sínum. Sögu Iðju má rekja allt aftur til ársins 1936 og er stofndagur félagsins talinn 29. mars það ár. Verkalýðsfélagið Eining varð til 10. febrúar 1963 með sameiningu Verkakvennafélagsins Einingar og Verkamannafélags Akureyrarkaupstaðar. Rætur Einingar ná þó mun lengra aftur og má segja að fyrsta fræinu hafi verið sáð árið 1894 þegar Verkamannafélag Akureyrarkaupstaðar, hið eldra, var stofnað. Þann 1. janúar 2008 gengu félagar í almennu deild Vöku til liðs við Einingu-Iðju. Frá sama tíma tók gildi sameining einstakra deilda Vöku við fjögur önnur félög í Eyjafirði.

Félagsvæði Einingar-Iðju nær frá Fjallabyggð að vestan til Grýtubakkahrepps að austan ásamt Hrísey og Grímsey.

Félagið skiptist í þrjár starfsgreinadeildir og er hugmyndin með starfsgreinaskiptingu að nýta kosti bæði stórra og smærri félaga. Deildirnar þrjár eru Iðnaðar- og tækjadeild, Matvæla- og þjónustudeild og Opinbera deildin.

Eining-Iðja á aðild að Starfsgreinasambandinu og Alþýðusambandi Íslands. Félagið tekur virkan þátt í starfi sambandanna og ýmissa annarra félaga og sjóða. Félagið á til dæmis stjórnarmann í framkvæmdastjórn Starfsgreinasambandsins, miðstjórn ASÍ og Stapa lífeyrissjóðs.

Félagið heldur úti öflugri þjónustu fyrir félagsmenn og leitast er við að tryggja þeim sem bestan aðgang að upplýsingum og þjónustu á heimasíðunni.