Félagsmenn Einingar-Iðju sem starfa hjá sveitarfélögum eða hættu störfum hjá sveitarfélögum á árinu 2020, ATHUGIÐ!
Allir félagsmenn sem störfuðu hjá sveitarfélagi á félagssvæðinu á tímabilinu frá 1. febrúar 2020 til 31. desember 2020 eiga að fá greitt úr félagsmannasjóði 1. febrúar nk. Sjóðurinn er hjá SGS og er 1,5% af heildarlaunum ykkar.
Til að hægt sé að greiða þetta út þarf að fá bankaupplýsingar fyrir hvern og einn til að leggja inn á.
Grein 13.8 í samningi Starfsgreinasambands Íslands og Sambands islenskra sveitarfélaga fjallar um félagsmannasjóðinn.
Trúnaðarmenn munu safna þessum upplýsingum saman frá félagsmönnum sem enn eru starfandi hjá sveitarfélagi.
Í síðasta kjarasamningi við sveitarfélögin var samið um og stofnaður sérstakur félagsmannasjóður. Atvinnurekandi greiðir mánaðarlegt framlag í sjóðinn sem nemur 1,5% af heildarlaunum félagsmanna og er greitt úr sjóðnum 1. febrúar ár hvert.