How can I read this news in another language?
Jak mogę przeczytać tę wiadomość w innym języku?
Í gildandi kjarasamningi aðildarfélaga SGS við sveitarfélögin segir að Launagreiðandi greiðir mánaðarlega framlag í félagsmannasjóð sem nemur 2,2% af heildarlaunum félagsmanna. Úthlutun úr sjóðnum skal fara fram 1. febrúar ár hvert samkvæmt stofnskrá sjóðsins.
Auk sveitarfélaga greiða í sjóðinn Hólmasól, Fjölsmiðjan og Hamrar, útilífsmiðstöð skáta.
Eining-Iðja á aðild að sjóðnum og ber að standa skil á þessum greiðslum til félagsmanna sem starfa eftir þessum samningi 1. febrúar ár hvert fyrir árið á undan. Forsenda þess að hægt sé að greiða úr sjóðnum er að Eining-Iðja hafi bankaupplýsingar félagsmanna sem eiga rétt á að fá greiðslu úr sjóðnum.
Kíktu inn á Mínar síður og kannaðu þínar upplýsingar!
Auðvelt er að skrá eða breyta ykkar upplýsingum með því að smella á strikin 3 sem finna má efst til hægri á Mínum síðum Einingar-Iðju, þá opnast fellilisti sem þarf að ýta á.
Hægt er að setja inn eða breyta upplýsingum um símanúmer, netfang og bankareikning. ATH! ekki er hægt að sækja um styrki eða orlofshús ef þessar upplýsingar liggja ekki fyrir.
