Í byrjun árs 2024 var tekið í notkun nýtt skipulag við kennslu á trúnaðarmannanámskeiðum félagsins. Námið er nú 12 sjálfstæðar einingar í stað fjögurra hluta þar sem nokkrar námseiningar voru kenndar saman.
Boðið er upp á:
- Staðnámskeið (eitt skyldunámskeið sem starfsmenn félagsins sjá um)
- Fjarnámskeið sem kennd eru í gegnum zoom og
- Vefnámskeið sem byggjast á upptökum
Trúnaðarmannanámskeið ASÍ og aðildarfélaga eru skipulögð af Félagsmálaskóla alþýðu og þarf að skrá sig á hvert námskeið. Það er gert í gegnum hlekk sem finna má við viðkomandi námskeið á heimasíðu Félagsmálaskólans. Hægt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkum. Í dálkinn „greiðandi“ þarf að setja kennitölu síns stéttarfélags. Þú finnur kennitölu þíns félags neðst á heimasíðu félagsins.
Lýsing á innihaldi trúnaðarmannanámskeiða skv. námsskrá.
Trúnaðarmaðurinn starf hans og staða:
- Farið er í hlutverk trúnaðarmanns á vinnustað, hvað á hann að gera og hvað á hann ekki að gera? Hvert er hlutverk trúnaðarmanna samkvæmt lögum og kjarasamningum.
- Hvar getur trúnaðarmaður aflað sér upplýsinga um túlkanir kjarasamninga og önnur mál sem koma inn á hans borð.
- Kynntir eru þeir gagnabankar sem trúnaðarmaður hefur aðgang að og getur leitað upplýsinga.
- Hvernig eiga trúnaðarmenn að taka á móti umkvörtunum og vinna úr þeim og gæta fyllsta trúnaðar í sínum störfum.
Samskipti á vinnustað:
- Lögð er megináhersla á mikilvægi góðra samskipta á vinnustað, hvernig megi stuðla að góðum samskiptum.
- Skoðuð er mismunandi framkoma, áhrif hennar á okkur og aðra.
- Nemendur kynnast afleiðingum langvarandi slæmra samskipta, eineltis á vinnustað og hvernig bregðast eigi við og ábyrgð gerenda og atvinnurekenda.
Þjóðfélagið og vinnumarkaðurinn:
- Fjallað er um þjóðfélag, samfélag og ýmis hugtök tengd því.
- Fjallað er um mikilvægi þess að vera þátttakandi í samfélagi sem byggir á lýðræði og þátttöku almennings. Farið er í skipulag stjórnkerfis á Íslandi.
- Einnig er farið í uppbyggingu og hlutverk stéttarfélaga og hagsmunasamtaka launafólks og atvinnurekenda. Uppbygging vinnumarkaðarins, hverjir eru viðsemjendur, samningaviðræður og gildi kjarasamninga.
- Í lokin er farið yfir tölulegar upplýsingar tengdum vinnumarkaðnum, þróun launa, framtíðarspár starfa og mannafjöldaspár.
Vinnuréttur:
- Megináhersla er lögð á lög um vinnurétt og hvernig þau styðja kjarasamninga og hvernig íslenskur vinnumarkaður er upp byggður.
- Lögð er áhersla á rétt launamanna t.d. til fæðingarorlofs, atvinnuleysistrygginga.
- Einnig er farið í ýmis þau réttindi í lögum og reglugerðum sem íslenskur vinnumarkaður byggir á.
Sjálfsefling:
- Nemendur kynnast því hvernig sjálfstraust einstaklinga hefur áhrif á samskipti.
- Einnig hvernig skortur á sjálfstrausti hamlar okkur í daglegur lífi.
- Nemendur kynnast leiðum til að efla sjálfstraustið og hvaða aðstæður geta haft áhrif á sjálfstraustið.
Lestur launaseðla:
- Nemendur læra reiknitölur helstu launaliða. Nemendur kynnast grunnuppbyggingu launaseðla og launaútreikninga.
- Einnig er farið í úreikninga á staðgreiðslu skatta og þeirra iðgjalda í lífeyrissjóði og aðra sjóði sem skylt er að reikna og draga frá launum.
- Einnig er lögð áhersla á mikilvægi varðveislu launaseðla.
Vinnueftirlit-vinnuvernd:
- Megináhersla er lögð á hlutverk Vinneftirlistins og vinnuvernd á vinnustöðum.
- Hverjir eiga að sjá um eftirlit á vinnustöðum og hver sé ábyrgðaraðili að launamenn vinni í hollu og öruggu vinnuumhverfi.
- Hvað felst í öryggi og hollustuháttum á vinnustað.
- Hvert er hlutverk öryggistrúnaðarmanna, öryggisvarða og öryggisnefnda og hvernig kosning og val þessara aðila fer fram.
Almanntryggingar og lífeyrissjóðir:
- Megináhersla er lögð á tilurð og uppbyggingu almannatryggingakerfisins og lífeyrissjóðakerfisins.
- Farið er í hugmyndafræði íslenska lífeyrissjóðakerfisins, styrk þess og hvernig það byggir á samkomulagi verkalýðshreyfingarinnar og atvinnurekenda.
- Fjallað er um skylduaðild, tryggingavernd og samspil lífeyrissjóðanna og almannatryggingakerfisins.
- Einnig er skoðuð réttindaávinnsla og taka lífeyris.
Túlkun talna og hagfræði:
- Hvernig hagfræði er notuð t.d. við gerð kjarasamninga, hvernig við nýtum hana til að mæla kaupmátt og hvaða áhrif t.d. verðbólga hefur á kaupmátt launa og afkomu heimilanna.
Samningatækni:
- Í þessum námsþætti er farið hvernig við getum metið stöðu okkar til að ná samkomulagi á vinnustað.
- Farið er í þau atriði sem hafa ber í huga þegar komast þarf að niðurstöðu í ágreiningi.
- Um hvað snýst deilan, hverjir eiga hlut að máli og hverjir hafa vald til að taka ákvörðun.
- Hvernig bregðumst við við?
- Hvernig náum við saman um sameiginlega niðurstöðu?
Starfsemi félagsins, kjarasamningar og sjóðir:
- Trúnaðarmenn kynnast starfsemi stéttarfélagsins, uppbyggingu þess og skipulagi.
- Einnig kynnast þeir þeim sjóðum félagsins, t.d. orlofssjóði, sjúkrasjóði og fræðslusjóðum, reglugerðum þeirra og réttindum félagsmanna í þeim.
- Farið er í túlkun kjarasamninga og þau ákvæði sem reynir mest á í starfsumhverfi félagsmanna.
Að koma máli sínu á framfæri:
- Á námskeiðinu er lögð áhersla á undirbúning framsögu og umræðu á vinnustaða-og félagsfundum.
- Einnig er fjallað um einkenni og tilgang ýmissa ræðuforma.
- Farið er í helstu atriði sem hafa þarf í huga til að fá áheyrn og að mál okkar komi skýrt og greinilega fram.
- Lögð er áhersla á framsögn og framkomu í ræðustól.