47. þing ASÍ

Dagana 14. til 16. október 2026 verður 47. þing Alþýðusambands Íslands haldið í Reykjavík.

Æðsta vald í málefnum ASÍ er í höndum þinga ASÍ sem haldin eru á tveggja ára fresti. Hvert aðildarfélag á rétt á að senda a.m.k. einn fulltrúa á þing sambandsins, en á það eiga rétt á að mæta þrjú hundruð fulltrúar launafólks af öllu landinu til að móta heildarsamtökunum stefnu og starfsáætlun og velja þeim forystu.

Nánari upplýsingar um þingið og dagskrá verður að finna er nær dregur á þingvef 47. þings ASÍ.