Ársfundur Stapa 2022

Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs verður haldinn miðvikudaginn 1. júní 2022 í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri kl. 14:00. Félagið á rétt á að senda 40 fulltrúa á fundinn, en þeir voru kosnir á aðalfundi félagsins sem haldinn var 6. apríl sl.

Ársfundurinn er opinn öllum sjóðfélögum og segir á heimasíðu Stapa að stjórn sjóðsins vonast eftir að sem flestir sjái sér fært að mæta. Sjóðfélagar eiga kost á því að fylgjast með fundinum í vefútsendingu. Skráning vegna vefútsendingar er hér.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  1. Setning ársfundar
  2. Skýrsla stjórnar, kynning og afgreiðsla ársreiknings og tryggingafræðilegt mat
  3. Fjárfestingarstefna sjóðsins
  4. Hluthafastefna sjóðsins
  5. Breytingar á samþykktum
  6. Skipan stjórnar
  7. Starfskjarastefna
  8. Kosning löggilts endurskoðanda
  9. Laun stjórnar
  10. Nefnd um laun stjórnar
  11. Önnur mál

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs leggur til að breytingar verði gerðar á samþykktum sjóðsins á ársfundi hans. Samkvæmt grein 10.1 í samþykktum sjóðsins skal senda aðildarfélögum tillögurnar minnst tveimur vikum fyrir ársfund. Tillögurnar hafa verið sendar aðildarfélögum ásamt greinagerð.

Önnur gögn má finna hér: