"Fjallaferðin" 2023

Farið verður í dagsferð um Bárðardal inn í Laugafell og niður í Skagafjörð laugardaginn 26. ágúst 2023.

Hámarksfjöldi er 90 manns. 

Farið verður með rútu frá Akureyri, lagt verður af stað kl. 9:00. Nauðsynlegt er að hafa með sér nesti til dagsins, annað en grillmat. 

  • Ferðin kostar kr. 5.000 á mann, innifalið er akstur, grillmatur, safar og meðlæti.
  • Leiðsögumaður verður með í för.

Skráning í ferðirna hófst þriðjudaginn 3. janúar 2023 á skrifstofum félagsins á Akureyri, á Dalvík og í Fjallabyggð, í síma 460 3600 eða með því að senda póst á netfangið ein@ein.is