Fulltrúaráðsfundur Stapa lífeyrissjóðs

Stjórn Stapa boðaði til rafræns fundar fulltrúaráðs fimmtudaginn 9. apríl 2026 kl. 16:30.  Félagið á rétt á að senda 41 fulltrúa á fundinn.

Hlekkur á fund og upplýsingar um atkvæðagreiðslu verða sendar fulltrúum í tölvupósti þegar nær dregur fundi.

Samkvæmt grein 3.7 í samþykktum skal stjórn sjóðsins kalla saman fulltrúaráðið tvisvar á ári, að hausti og í aðdraganda ársfundar þar sem málefni sjóðsins eru rædd. Á fundinum verður m.a. farið yfir lykiltölur, breytingar á samþykktum undirbúnar fyrir ársfund og tilnefningar í stjórn sjóðsins staðfestar. Um hlutverk og starfsemi fulltrúaráðs að öðru leyti vísast í kjarasamninga.


Drög að dagskrá eru eftirfarandi:

  1. Setning fulltrúaráðsfundar
  2. Lykiltölur úr afkomu
  3. Starfskjarastefna
  4. Staðfesting tilnefninga í stjórn
  5. Drög að breytingum á samþykktum
  6. Hugmyndir um breytingar á örorkulífeyriskerfinu
  7. Önnur mál

Fulltrúaráðið er skipað þeim einstaklingum sem tilnefndir voru á ársfund sjóðsins þann 13. maí 2025 sem fulltrúar þeirra aðildarfélaga sem að sjóðnum standa. Aðeins tilnefndir fulltrúar frá ársfundinum eða varamenn þeirra hafa atkvæðisrétt á fulltrúaráðsfundum.