Fulltrúaráðsfundur Stapa lífeyrissjóðs

Stjórn Stapa boðaði til rafræns fundar fulltrúaráðs miðvikudaginn 25. nóvember 2026, kl. 16:30. Félagið á rétt á að senda 42 fulltrúa á fundinn og hafa þeir verið boðaðir á hann.

Hlekkur á fund og upplýsingar um atkvæðagreiðslu verða sendar fulltrúum í tölvupósti þegar nær dregur fundi.

Samkvæmt grein 3.7 í samþykktum skal stjórn sjóðsins kalla saman fulltrúaráðið tvisvar á ári, að hausti og í aðdraganda ársfundar, þar sem málefni sjóðsins eru rædd. Um hlutverk og starfsemi fulltrúaráðs að öðru leyti vísast í kjarasamninga.

Fulltrúaráðið er skipað þeim sem tilnefndir voru á ársfund sjóðsins þann 27. apríl sl. sem fulltrúar þeirra aðildarfélaga sem að sjóðnum standa.

Aðilar í fulltrúaráði frá ársfundinum eða varamenn þeirra hafa atkvæðisrétt á fulltrúaráðsfundum.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi

  1. Lykilatriði úr rekstri sjóðsins 2026
  2. Fjárfestingarstefna 2027
  3. Önnur mál