Kynning fyrir trúnaðarmenn

How can I read this news in another language?
Jak mogę przeczytać tę wiadomość w innym języku?

Kynning fyrir nýja og núverandi trúnaðarmenn hjá Einingu-Iðju

  • 26. janúar 2027
  • kl. 14:00–15:00
  • Í sal Einingar-Iðju, Skipagötu 14- 600 Akureyri.

Boðið verður upp á kynningu þar sem farið er yfir hlutverk og mikilvægi trúnaðarmanna. Fjallað verður um helstu þætti sem snúa að ábyrgð, réttindum og skyldum trúnaðarmanna, auk kynningar á starfsemi félagsins og öðrum mikilvægum atriðum sem tengjast hlutverkinu.

Kynningin er ætluð bæði nýjum og núverandi trúnaðarmönnum og er mikilvægur grunnur fyrir öfluga og markvissa hagsmunagæslu.

Allir trúnaðarmenn félagsins fengu boð á fundinn í tölvupósti.

Kynningin fer fram á íslensku.

  • Næsta kynning á ensku fer fram 9. febrúar 2027 kl. 10:00. Við sendum fundaboð aftur fyrir skráningu á þá kynningu.
  • Næsta kynning á íslensku fer fram 9. mars 2027 kl. 14:00. Við sendum fundaboð aftur fyrir skráningu á þá kynningu.

Hlökkum til að sjá ykkur !