Laust starf þjónustufulltrúa á Kjarasviði - síðasti umsóknardagur

Umsóknarfrestur er til og með 17.nóvember 2026

Hefur þú áhuga á málefnum vinnumarkaðarins?

Eining-Iðja leitar að öflugum starfsmanni í lifandi og fjölbreytt starf á skrifstofu félagsins á Akureyri.

Helstu verkefni

  • Móttaka félagsmanna og almenn upplýsingagjöf
  • Verkefnastjórnun
  • Málefni tengd kjarasamningum
  • Útreikningar
  • Eftirlit með vinnustaðaskírteinum
  • Skýrslugerð og upplýsingagjöf
  • Samstarf og samskipti við félagsmenn, stéttarfélög, stofnanir og aðra hagsmunaaðila
  • Ýmis önnur verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Nám sem nýtist í starfi
  • Reynsla og þekking á vinnumarkaði og nærsamfélaginu
  • Þekking á málefnum eins og vinnurétti kostur
  • Þekking á kjarasamningsmálum er kostur
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvætt viðmót og þjónustulund
  • Geta til að skilja og setja sig inn í mismunandi aðstæður einstaklinga
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
  • Góð tölvukunnátta og færni í meðferð talna
  • Góð tungumálakunnátta í íslensku, ensku og pólskukunnátta kostur
  • Færni í að koma frá sér efni í ræðu og riti

Umsóknarfrestur er til og með 17.nóvember 2026

Sótt er um á www.mognum.is

Með umsókn þarf að fylgja með ítarleg ferilsskrá auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.

Nánari upplýsingar veita Sigríður Ólafsdóttir; sigga@mognum.is og Telma Eiðsdóttir; telma@mognum.is

Félagsvæði Einingar-Iðju nær frá Fjallabyggð að vestan til Grýtubakkahrepps að austan ásamt Hrísey og Grímsey. Félagið heldur úti öflugri þjónustu fyrir félagsmenn og leitast er við að tryggja þeim sem bestan aðgang að upplýsingum og þjónustu. Fjórtán starfsmenn starfa hjá félaginu á skrifstofum félagsins á Akureyri, Dalvík og í Fjallabyggð.