Vegna veikinda er lokað á skrifstofu félagsins í Fjallabyggð vikuna 15. til 19. september.
Svarað er í síma 460 3600 á skrifstofum félagsins á Akureyri og Dalvík á hefðbundum opnunartíma.
Við minnum félagsmenn á að sækja rafrænt um styrki, bæði úr fræðslusjóði og sjúkrasjóði, og sjúkradagpeninga inn á Mínum síðum Einingar-Iðju, þar inni er einnig pantað eða sótt um og greitt fyrir orlofshús og íbúðir.
Á Mínum síðum Einingar-Iðju má finna hnapp til að senda inn fyrirspurn eða stofna mál.
Einnig er hægt að senda póst og fyrirspurnir á ein@ein.is