Lokað vegna námskeiðs

Vegna námskeiðs starfsmanna verður lokað á skrifstofum félagsins fimmtudaginn 19. nóvember 2026. 

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér.

Vert er að benda á að á Mínum síðum Einingar-Iðju má finna hnapp til að senda inn fyrirspurn.

Við minnum félagsmenn á að sækja rafrænt um styrki, bæði úr fræðslusjóði og sjúkrasjóði, og sjúkradagpeninga inn á Mínum síðum Einingar-Iðju, þar inni er einnig pantað eða sótt um og greitt fyrir orlofshús og íbúðir.

Einnig er hægt að senda póst og fyrirspurnir á ein@ein.is

Starfsfólk Einingar-Iðju.