Síðasti skiladagur umsókna vegna orlofskosta sumarsins

2. apríl 2024 er síðasti dagur til að senda inn rafræna umsókn vegna orlofshúsa og íbúða félagsins næsta sumar og vegna Orlof að eigin vali.  Upplýsingar um hvað er í boði má finna á orlofsvef félagsins

ATHUGIÐ! Einungis er hægt að senda inn rafræna umsókn í gegnum Orlofsvefinn. Hægt er að skrá sig inn með Íslykli eða rafrænum skilríkjum í síma eða á korti. Ef þú lendir í vandræðum við að senda inn umsókn getur þú fengið aðstoð á skrifstofum félagsins.

  • Miðvikudaginn 3. apríl verður orlofshúsum úthlutað
  • Þeir sem fá úthlutað þurfa að ganga frá greiðslu í síðasta lagi 15. apríl 2024.
  • 17. apríl 2024 verður opnað á netinu fyrir það sem enn verður laust. Þá gildir fyrstur kemur, fyrstur fær. Einnig verður hægt að hafa samband við skrifstofur félagsins til að fá upplýsingar um lausar vikur.