Sjúkrasjóður og fræðslusjóðir- skil á gögnum

Reglur um skil á gögnum til sjúkrasjóðs Einingar-Iðju og vegna fræðslusjóða félagsins

Vinsamlegast athugið!

Fundur er haldinn í stjórn sjúkrasjóðs Einingar-Iðju einu sinni í mánuði. Gögn sem leggja á fyrir fund þurfa að hafa borist til skrifstofunnar í síðasta lagi 27. hvers mánaðar. ATH! breytilegt er milli ára hvenær skila þarf gögnum í desember.

Umsóknir um allar greiðslur úr sjúkrasjóði eru lagðar fyrir fund þ.m.t. dagpeningar, endurgreiðslur vegna sjúkraþjálfunar, sjúkranudds, krabbameinsleitar og allra styrkja sem greiddir eru skv. reglugerð sjóðsins.

Það sama gildir vegna skila á gögnum til fræðslusjóða félagsins. Ekki er hægt að ábyrgjast greiðslu um næstu mánaðamót ef gögn koma eftir 27. hvers mánaðar.