FRESTAÐ Starfslokanámskeið í Fjallabyggð - seinni hluti

FRESTAÐ VEGNA COVID - VERÐUR Á ÁRINU 2022 - AUGLÝST ER NÆR DREGUR!

Á undanförnum árum hefur félagið haldið nokkur námskeið fyrir félagsmenn á aldrinum 65 til 70 ára með það að markmiði að fræða viðkomandi um rétt sinn og að leiðbeina við starfslok. Nú hefur verið ákveðið að halda tvö slík námskeið, á Dalvík og í Fjallabyggð, í samvinnu við SÍMEY. Síðasti skráningardagur er 18. nóvember nk.  

Námskeiðin eru eingöngu fyrir félagsmenn í Einingu-Iðju og er þeim að kostnaðarlausu.

Námskeiðið í Fjallabyggð verður í sal félagsins í Fjallabyggð dagana 22. og 29. nóvember nk. en námskeiðið á Dalvík verður í námsveri SÍMEY dagana 23. og 30. nóvember nk. Námskeiðin standa yfir milli kl. 16:30 og 20:00 þessa daga.

Fjallabyggð - Fyrri hluti - Mánudagur 22. nóvember  

  • 16:30-16:40  Setning námskeiðs.
  • 16:40-17:10  Eining-Iðja, félagið okkar við starfslok. Anna Júlíusdóttir, varaformaður Einingar-Iðju.
  • 17:10-18:10  Andlegar og félagslegar hliðar þess að hætta að vinna. Kristján Már Magnússon sálfræðingur.
  • 18:10-18:25  Hressing.
  • 18:25-19:25  Stapi – lífeyrissjóðsmál. Jóna Finndís Jónsdóttir og Kristín Hilmarsdóttir frá Stapa lífeyrissjóði.
  • 19:25-20:15  Heilsueflandi fyrirlestur. Sonja Sif Jóhannsdóttir íþróttafræðingur.

Fjallabyggð - Seinni hluti - Mánudagur 29. nóvember 

  •  16:30-17.15  Almannatryggingar og lífeyrismál. Fulltrúi frá sýslumanni.
  • 17:15-17:45  Kynning frá félögum eldri borgara í Fjallabyggð.
  • 17:45-18:00  Hressing.
  • 18:00-18:30  Sveitarfélagið Fjallabyggð, kynning á félagsstarfi eldri borgara.
  • 18:30-19:00  SÍMEY hver erum við - hvað gerum við? Fulltrúi frá SÍMEY.
  • 19:00-19:15  Samantekt og lok.

Athugið að dagskráin er sett fram með fyrirvara um breytingar.   

Heiti námskeiðsDagsDagarTímiStaðsetningSkráning
Fjallabyggð            22. og 29. nóv       Mánudagar      16.30-20.00      Salur Einingar Iðju á Siglufirði           SKRÁNING
Dalvík 23. og 30. nóv Þriðjudagar 16.30-20.00 Námsver SÍMEY í Víkurröst SKRÁNING