Skráning fer fram hjá félaginu í síma 460 3600, en nemendur þurfa líka að skrá sig inn á innri vef Félagsmálaskólans – „mínar síður“
Stiklur um efnið
- Hvert er hlutverk stéttarfélaga, sambanda og heildarsamtaka á vinnumarkaði.
- Hvernig starfa stéttarfélögin, stjórnir þeirra og hvert er hlutverk félagsmanna.
- Hvert er hlutverk trúnaðarmanns á vinnustað, hvað á hann að gera og hvað á hann ekki að gera?
- Hvert er hlutverk trúnaðarmanna samkvæmt lögum og kjarasamningum.
- Hvar getur trúnaðarmaður aflað sér upplýsinga um túlkanir kjarasamninga og önnur mál sem koma inn á hans borð.
- Hvernig eiga trúnaðarmenn að taka á móti umkvörtunum og vinna úr þeim.
- Lögð er megináhersla á mikilvægi góðra samskipta á vinnustað, hvernig megi stuðla að góðum samskiptum.
- Skoðuð er mismunandi framkoma, áhrif hennar á okkur og aðra.
- Nemendur kynnast afleiðingum langvarandi slæmra samskipta, eineltis á vinnustað, hvernig bregðast eigi við og ábyrgð gerenda og atvinnurekenda