Oft hefur verið betra veður á 1. maí á Akureyri heldur en í dag. Mikil hraðferð var á logninu og þó sólargeislar hafi náð að brjótast í gegnum skýin þá náðu nokkrir þeirra að breyttast í snjókorn á leið til jarðar er kröfuganga, sem stéttarfélögin stóðu fyrir í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi verkafólks, lagði af stað frá Alþýðuhúsinu.
Þrátt fyrir veðrið mættu fjölmargir til að taka þátt í kröfugöngunni. Einnig var góð mæting í kaffiveislu á skrifstofu stéttarfélaganna í Fjallabyggð, þar sem Anna Júlíusdóttir, formaður Einingar-Iðju, flutti ávarp.
Yfirskrift þessa baráttudags okkar að þessu sinni eru „Styrkur okkar er velferð allra.”
Gengið var fylgtu liði frá Alþýðuhúsinu, við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar, gegnum miðbæinn að Ráðhústorgi þar sem fram fór hátíðardagskrá í tilefni dagsins eins og gjarnan var gert á árum áður, en ekki í menningarhúsinu Hofi eins og mörg síðustu ár.
Fundarstjóri var Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara. Erla Rán Kjartansdóttir, formaður Bandalags kennara á Norðurlandi eystra, flutti ávarp 1. maí nefndar stéttarfélaganna sem má finna í heild neðst í fréttini og Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, flutti hátíðarræðuna að þess sinni. Auk þess var boðið upp á skemmtiatriði. Félagar í Leikfélagi Menntaskólans á Akureyri sýndu atriði úr söngleiknum Ljóska í gegn og félagar úr Leikfélagi Verkmenntaskólans á Akureyri sýndu atriði úr leikritinu Ronja ræningjadóttir.
Gestum var boðið upp á kleinur og grillaðar pylsur, gos og safa, auk þess sem í boði var skátatívolí.
Það má með sanni segja að dagurinn hafi verið vel heppnaður og þökkum við öllum þeim sem komu og fögnuðu með okkur.
Ávarp 1. maínefndar stéttarfélaganna við Eyjafjörð 2026
Kæru félagar fyrir hönd stéttarfélaganna á Akureyri hefur Kennarsambandinu verið falin forsjá að þessum baráttudegi okkar. Ég heiti Erla Rán Kjartansdóttir og er formaður Svæðafélags Grunnskólakennara á Norðurlandi eystra
Ég vil byrja á því að óska ykkur öllum innilega til hamingju með daginn!
Í dag 1. maí á hátíðs- og baráttudegi verkalýðshreyfingarinnar komum við saman til að líta yfir farinn veg. Við komum líka saman til að horfa fram á veginn.
Nú erum við saman komin á Ráðhústorgi en hér, efst í Strandgötunni, voru áratugum saman haldin hátíðlegur 1. maí og því má segja að 1. maí sé kominn heim.
Kjörorð dagsins í dag er: Styrkur okkar er velferð allra. Þetta merkir að styrkur stéttarfélaganna er það sem heldur uppi velferð allra hvort sem þeir eru á vinnumarkaði eða ekki.
Í dag eru útgreidd lágmarkslaun langt frá því að duga fyrir framfærslu fjölskyldu þó báðir aðilar vinni úti. Húsnæðisverð er hátt og vextir langt fyrir ofan það sem fólk ræður við. Lífeyrir þeirra sem komnir eru á efri ár dugar ekki til framfærslu og sama má segja um öryrkja..
Það er nauðsynlegt að stéttarfélögin séu sterk og stéttarvitund einnig ef vinna á að bótum á þessu. Sagan segir okkur að það voru stéttarfélögin og samstað félaga í þeim hafa skapað réttindi fólksins. Þar má nefna lífeyrir, atvinnuleysisbætur o.s.frv...
Hlutverk stéttarfélaga nú til dags er, auk hefðbundinnar kjarabaráttu er að berjast fyrir samfélagi jafnréttis og jafna tækifæri fólks. Jöfn tækifæri að menntun, heilbrigðiskerfi, lyfjum og síðast en ekki síst húsnæðis.
Það þarf sterk stéttarfélög til að takast á við og vinna með ríkisstjórn og atvinnurekendum. Þessir aðilar þurfa hins vegar allir á hinum að halda ef nást á verulegur árangur.
Þið, félagar góðir eru grasrótin og með öflugri grasrót verður niðurstaðan glæsileg.
Ég lík þessu á kjörorði dagsins: Styrkur okkar er velferð allra
Til hamingju með baráttudaginn 1. maí 2026.