1. maí - Í ár hittumst við í stofunni heima!

Vegna sérstakra aðstæðna í þjóðfélaginu er ekki hægt að bjóða upp á hefðbundnar hátíðarsamkomur 1. maí nk. og því munu stéttarfélögin við Eyjafjörð standa fyrir dagskrá á N4 á hátíðisdaginn. Rætt verður við fulltrúa státtarfélaganna í útsendingunni um starfsemina og baráttumál. Þá stígur norðlenskt tónlistarfólk á stokk. Þátturinn verður frumsýndur á N4 klukkan 13:00, þann 1. maí.

Einnig verður dagskrá á RÚV um kvöldið

Í fyrsta skipti síðan 1923 getur íslenskt launafólk ekki safnast saman á 1. maí til að leggja áherslu á kröfur sínar. Við þessu er brugðist með útsendingu frá sérstakri skemmti- og baráttusamkomu sem flutt verður í Hörpu að kvöldi 1. maí og sjónvarpað á RÚV kl. 19:40.

Landsþekktir tónlistarmenn, skemmtiatriði og hvatningarorð frá forystu verkalýðshreyfingarinnar einkenna þennan viðburð sem verður að teljast sögulegur. Meðal listamanna sem koma fram eru Ragnheiður Gröndal, Bubbi Morthens, Amabadama, Jói P og Króli, Ellen Kristjáns og Auður, Jakob Birgisson uppistandari, KK og Lúðrasveit verkalýðsins.

Þar sem engar verða kröfugöngurnar verður hægt að búa til sitt eigið kröfuspjald á Facebook og sýna stuðning sinn við baráttu verkalýðshreyfingarinnar í verki með því að merkja prófílmyndina sína 1. maí. Við hvetjum til þátttöku í baráttudeginum á Facebook og svo til áhorfs á RÚV um kvöldið.

Að dagskránni í sjónvarpinu og viðburðum á samfélagsmiðlum standa eftirfarandi heildarsamtök launafólks: ASÍ, BHM, BSRB og KÍ.