1. maí - Tökum þátt í hátíðarhöldunum

Styrkur okkar er velferð allra - Mætum öll 1. maí!
Styrkur okkar er velferð allra - Mætum öll 1. maí!

Alþjóðlegur baráttudagur launafólks verður haldinn hátíðlegur með dagskrá á Akureyri og í Fjallabyggð föstudaginn 1. maí.

Kröfuganga og hátíðardagskrá á Akureyri föstudaginn 1. maí

  • 13:45 – Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið
  • 14:00 – Lagt af stað við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar

Hátíðardagskrá á Ráðhústorgi að lokinni kröfugöngu

  • Fundarstjóri er Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara
  • Ávarp 1. maí nefndar stéttarfélaganna – Erla Rán Kjartansdóttir, formaður Bandalags kennara á Norðurlandi eystra
  • Hátíðarræða – Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands
  • Leikfélag Menntaskólans á Akureyri sýnir atriði úr söngleiknum Ljóska í gegn
  • Leikfélag Verkmenntaskólans á Akureyri sýnir atriði úr leikritinu Ronja ræningjadóttir

Grillaðar pylsur og skátatívolí að dagskrá lokinni

Dagskrá í Fjallabyggð 2026

Boðið verður upp á létta dagskrá í sal félaganna að Eyrargötu 24b Siglufirði föstudaginn 1. maí kl. 14:30 – 17:00

Ávarp 1. maí nefndar stéttarfélaganna flutt af Önnu Júlíusdóttur, formanni Einingar-Iðju.

Boðið verður upp á kaffiveitingar