10. þing Starfsgreinasambands Íslands fer fram dagana 8. til 10. október nk. í Hofi á Akureyri. Þingið hefur æðsta vald í málefnum sambandsins og þar eru lagðar línurnar í kjaramálum og starfsemi sambandsins til næstu tveggja ára. Á þingið í ár mæta alls 135 fulltrúar frá 18 aðildarfélögum sambandsins, þar af 15 frá Einingu-Iðju
Dagskrá þingsins verður með hefðbundnu sniði en öll helstu gögn og upplýsingar um þingið eru aðgengilegar á sérstökum þingvef.
Miðvikudagur 8. október
Kl. 17:00 Setning og ávörp gesta
-Inga Sæland, Félags- og húsnæðismálaráðherra
-Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ
-Vilhjálmur Birgisson, formaður SGS
Kl. 18:00 Kosning þingforseta og ritara, kynning á þingvef, álit kjörbréfanefndar, niðurstöður nefndanefndar.
Kl. 18:30 Þingi frestað
Fimmtudagur 9. október
Kl. 09:00 Kynning á nefndarstörfum
-Kjaramál
-Húsnæðismál
-Lífeyrismál
-Byggðamál
Kl. 09:10 Lög SGS og þingsköp SGS
Kl. 09:30 Skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra SGS og ársreikningar sambandsins 2023 og 2024
Kl. 10:15 Þróun og horfur í kjaramálum – Ágúst Arnórsson, hagfræðingur ASÍ
-Umræður
Kl. 11:30 Staða launafólks á Íslandi – Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörðu
-Umræður
Kl. 12:15 Hádegishlé
Kl. 13:00 Málefni lífeyrissjóðanna – Jóhann Steinar Jóhannsson, framkvæmdastjóri Stapa og Björn Snæbjörnsson, formaður Landssambands eldri borgara
-Umræður
Kl. 14:00 Nefndarstörf hefjast
Kl. 17:00 Þingi frestað
Kl. 19:00 Þingveisla
Föstudagur 10. október
Kl. 9:00 Afgreiðsla ályktana
Lagabreytingar (umræða og afgreiðsla)
Afgreiðsla starfs- og fjárhagsáætlunar
Ákvörðun um skatthlutfall
Kl. 11:00 Kosningar
Kosning formanns SGS
Kosning varaformanns SGS
Kosning aðalmanna í framkvæmdastjórn SGS
Kosning varamanna í framkvæmdastjórn SGS
Kosning endurskoðenda og félagslegra skoðunarmanna reikninga
Kosning fastanefnda (Laganefnd og Kjörnefnd)
Kl. 14:00 Þingslit