1.003 umsóknir um orlofskosti sumarsins

Kl. 22:00 í gær, fimmtudaginn 26. mars, rann út frestur til að skila inn umsóknum fyrir sumarið um orlofsíbúð, orlofshús eða “Orlof að eigin vali.”  Til félagsins bárust 1.003 umsóknir frá 534 félagsmönnum. Stefnt er á að úthlutun verði lokið 31. mars nk. 

Allir sem sóttu um munu fá niðurstöður úthlutunar sendar í sms/tölvupósti til sín. Á Mínum síðum félagsins má þá einnig sjá niðurstöðu umsóknar viðkomandi félagsmanns.

  • Stefnt er á að úthlutun fari fram 31. mars, þar sem hæsta punktastaða ræður úthlutun. Niðurstöður úthlutunar sendar í sms/tölvupósti til félagsfólks. Þá verður sendur greiðsluhlekkur til þeirra sem fengu orlofshús eða íbúð. Á Mínum síðum geta félagsmenn séð hvaða eign þeir fengu úthlutað.
  • Greiða þarf íbúð með greiðslukorti fyrir 9. apríl að öðrum kosti fellur úthlutunin niður.
  • Mánudaginn 13. apríl kl. 12.00 opnar fyrir alla í „fyrstir koma, fyrstir fá“. Þá er opnað fyrir þær vikur sumars sem eftir verða.

Punktakerfi
Til þess að gæta sem mestrar sanngirni við úthlutun orlofshúsa og orlofsíbúða notar félagið punktakerfi sem þykir hafa reynst vel. Hver félagsmaður vinnur sér inn einn punkt fyrir hvern mánuð sem hann greiðir til félagsins. Þeir sem síðan hafa safnað flestum punktum þegar kemur að úthlutun ganga fyrir þegar mikil ásókn er í húsin. Þegar félagsmaður fær úthlutað tíma í orlofshúsi dregst tiltekinn punktafjöldi frá inneign viðkomandi þannig að tryggt er að þeir sem fá úthlutað dvöl í orlofshúsi eru ekki áfram efstir á blaði, en halda þó auðvitað áfram að safna sér punktum fram að úthlutun næsta árs með því að greiða félagsgjöld.

Ekki eru dregnir frá punktar að vetri til.

  • 18 punktar í frádrátt:
    • Fyrir Orlof að eigin vali.
  • 36 punktar í frádrátt:
    • Fyrir sumarvikur