12 sóttu um starf á kjarasviði

Nýlega auglýsti félagið eftir öflugum starfsmanni í lifandi og fjölbreytt starf á skrifstofu félagsins á Akureyri, sérfræðingi í kjaramálum og vinnumarkaði.

Umsóknarfrestur rann út 31. janúar sl. og sóttu 12 einstaklingar um starfið. 

Mögnum er nú að fara yfir umsóknirnar og taka viðtöl við umsækjendur, en fyrirtækið sér um ráðningarferlið. Stefnt er að því að ganga frá ráðningu á nýjum starfsmanni fljótlega.