12. þing ASÍ-UNG hefst á morgun

12. þing ASÍ-UNG fer fram dagana 5. og 6. nóvember 2026 í Reykjavík.

Félagið á rétt að senda tvo aðalfulltrúa á þingið. Fulltrúar félagsins verða þau Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir, sem er varaformaður ASÍ-UNG, og Valdimar Friðjón Jónsson, sem verið hefur varamaður í stjórn ASÍ-UNG.

Yfirskrift þingsins er: “Hvað situr eftir? - Kjör, skattar og framtíðartækifæri ungs fólks” og mun málefnavinna þings taka mið að því, auk venjubundinna þingstarfa.

Kaffitíminn með ASÍ-UNG
Á þinginu ætla þingfulltrúar að ræða kjör, skatta og framtíðartækifæri ungs fólks á vinnumarkaði. Þinginu til stuðnings fékk formaður ASÍ-UNG til sín góðan gest í podcastið, Róbert Farestveit, hagfræðing á skrifstofu ASÍ, til að ræða fjárhagslega stöðu ungs fólks og reyna að gera efnahagsumræðuna aðeins skiljanlegri. Þau ræddu m.a. um kaupmátt, verðbólgu og hvers vegna opinberar tölur um stöðu heimilanna endurspegla ekki alltaf upplifun fólks af eigin fjárhag. Þau skoða sérstaklega hvaða áhrif húsnæðiskostnaður, háir vextir og erfið staða á húsnæðismarkaði hafa á ungt fólk og hvort það sé í raun dýrara að vera ungur í dag en áður. En hvað geta kjarasamningar gert til að bæta stöðuna, og hvaða vandamál þarf að leysa annars staðar?

Þátturinn er bæði á Spotify og Apple podcast