12. þing ASÍ-UNG kallar eftir jöfnum framtíðartækifærum ungs fólks

12. þingi ASÍ-UNG fór fram á Hotel Reykjavík Askja fyrir helgina. Þingið samþykkti eftirfarandi ályktun um framtíðartækifæri ungs fólks, en nánar verður sagt frá þinginu næsta mánudag.

ASÍ-UNG er ungliðahreyfing Alþýðusambands Íslands og vettvangur ungs launafólks innan aðildarfélaga sambandsins. Hreyfingin vinnur að því að efla rödd ungs fólks innan verkalýðshreyfingarinnar og standa vörð um kjör þess og réttindi á vinnumarkaði.

Ályktun 12. þings ASÍ-UNG: Framtíðartækifæri ungs fólks

12. þing ASÍ-UNG lýsir yfir þungum áhyggjum af þeim hindrunum sem standa í vegi fyrir félagslegum hreyfanleika ungs fólks. Tækifæri til menntunar, atvinnu, húsnæðis og fjárhagslegs sjálfstæðis eiga ekki að ráðast af efnahag foreldra, fjölskyldubakgrunni eða búsetu. Þingið telur brýnt að sporna gegn þeirri þróun að félagsleg og efnahagsleg staða erfist milli kynslóða og að ungt fólk hafi sífellt minni möguleika á að bæta eigin lífskjör.

Húsnæðismarkaðurinn er ein stærsta hindrunin fyrir félagslegum hreyfanleika. Há leiga, hátt húsnæðisverð og þungur vaxtakostnaður gera ungu fólki erfitt fyrir að byggja upp fjárhagslegt sjálfstæði. Tryggja þarf öruggan leigumarkað og aukið framboð húsnæðis á viðráðanlegum kjörum, meðal annars með eflingu óhagnaðardrifinnar húsnæðisuppbyggingar.

Leiðin til húsnæðiseignar má ekki ráðast af fjárhagslegum stuðningi foreldra. Sérstaklega þarf að bregðast við því bili sem myndast þegar fólk missir rétt til húsnæðisstuðnings án þess að hafa öðlast fjárhagslega getu til að kaupa eigið húsnæði. Þingið kallar eftir bættum lánakjörum, endurskoðun greiðslumats með tilliti til fyrri leigugreiðslna og heildstæðri endurskoðun húsnæðisstuðnings, þar á meðal vaxtabótakerfisins, svo stuðningur nái bæði til þeirra sem eru að byggja upp eigið fé og þeirra sem þurfa stuðning við að standa undir húsnæðiskostnaði eftir kaup.

Stuðningskerfi samfélagsins eiga að jafna tækifæri en ekki viðhalda ójöfnuði. Samspil skatta, bóta og tekjutengdra gjalda getur orðið til þess að ungt fólk og barnafjölskyldur festist í fjárhagslegri óvissu þrátt fyrir atvinnuþátttöku. Þingið kallar eftir endurskoðun tekjuviðmiða, skerðingarmarka og jaðarskatta með hliðsjón af framfærslukostnaði og ráðstöfunartekjum. Tryggja þarf að stuðningskerfin vinni betur saman og að fjárhagslegur ávinningur af aukinni atvinnuþátttöku skili sér til fólks.

Jöfn tækifæri á vinnumarkaði eru forsenda félagslegs hreyfanleika. Ungt fólk verður að fá tækifæri til að öðlast starfsreynslu og nýta menntun sína. Óásættanlegt er að skortur á námssamningum og starfsþjálfun hindri fólk í að ljúka námi eða komast til starfa. Þingið kallar eftir aukinni ábyrgð atvinnurekenda og menntakerfisins á starfsþjálfun og því að aðgengi að menntun, endurmenntun og starfsþróun sé tryggt óháð fjárhag, búsetu og atvinnustöðu.

Tæknibreytingar og aukin notkun gervigreindar mega ekki grafa undan atvinnuöryggi og réttindum launafólks. Þingið leggur áherslu á að verkalýðshreyfingin taki virkan þátt í mótun framtíðar vinnumarkaðarins, tryggi mannlega ábyrgð og þátttöku við innleiðingu nýrrar tækni og beiti sér fyrir því að starfsfólk hafi raunhæf tækifæri til endurmenntunar þegar störf breytast. Jafnframt þarf að tryggja að tækniframfarir dragi ekki úr tækifærum nýrra kynslóða til að öðlast starfsreynslu, byggja upp fagþekkingu og miðla henni áfram.

Fjölskylduaðstæður og búseta mega ekki takmarka möguleika ungs fólks til þátttöku í samfélaginu. Tryggja þarf að fæðingarorlof, leikskólaþjónusta og önnur stuðningskerfi geri foreldrum kleift að samræma atvinnu, nám og fjölskyldulíf. Jafnframt þarf að draga úr þeim aðstöðumun sem skapast vegna búsetu, meðal annars hvað varðar aðgengi að menntun, atvinnu og nauðsynlegri þjónustu. Tryggja þarf foreldrum jöfn tækifæri til umönnunar barna.

12. þing ASÍ-UNG kallar eftir samstilltum aðgerðum stjórnvalda, sveitarfélaga, atvinnurekenda og verkalýðshreyfingarinnar til að tryggja félagslegan hreyfanleika og jöfn framtíðartækifæri ungs fólks.

Jöfn tækifæri verða ekki tryggð til framtíðar nema kerfin sem eiga að skapa þau séu í stöðugri þróun í takt við samfélagið.