Nýlega auglýsti félagið eftir öflugum starfsmanni í lifandi og fjölbreytt starf á skrifstofu félagsins á Akureyri, þjónustufulltrúa á kjarasviði.
Umsóknarfrestur rann út 17. nóvember sl. og bárust 28 umsóknir um starfið.
Mögnum er nú að fara yfir umsóknirnar og skipuleggja viðtöl við umsækjendur, en fyrirtækið sér um ráðningarferlið. Stefnt er að því að ganga frá ráðningu á nýjum starfsmanni fljótlega.