37. þing Alþýðusambands Norðurlands hefst á morgun

Mynd tekin á síðasta þingi AN, sem fram fór í september 2019.
Mynd tekin á síðasta þingi AN, sem fram fór í september 2019.

37. þing Alþýðusambands Norðurlands (AN) fer fram á Illugastöðum í Fnjóskadal dagana 29. og 30. september nk. Alls eiga um 100 fulltrúar rétt á setu á þinginu og þar af á Eining-Iðja rétt á að senda 47. Góðir gestir og fyrirlesarar munu mæta á þingið eins og áður. 

Nánari upplýsingar um þingið og dagskrá þess má finna á glænýjum þingvef AN.