39. þing Alþýðusambands Norðurlands hófst í morgun

Góðir gestir of fyrirlesarar mæta á þingið. Hér má sjá Magnús Smára Smárason, verkefnastjóra í gervi…
Góðir gestir of fyrirlesarar mæta á þingið. Hér má sjá Magnús Smára Smárason, verkefnastjóra í gervigreind hjá HA sem var með fyrirlestur um gervigreind á mannamáli

Fyrr í dag hófst 39. þing Alþýðusambands Norðurlands (AN) og er það venju samkvæmt haldið á Illugastöðum í Fnjóskadal. Þinginu mun ljúka um hádegi á morgun.

Þing AN skal halda annað hvert ár. Fulltrúar á AN þingi eru 100 sem skiptast á milli aðildarfélaga eftir fjölda félagsmanna skv. skýrslu til ASÍ um félagsmenn frá árinu á undan. Öll félög eiga rétt á að senda að lágmarki tvo fulltrúa.

Eining-Iðja átti rétt á að senda 49 fulltrúa á þingið.

Góðir gestir og fyrirlesarar mæta á þingið eins og áður.

Nánari upplýsingar um þingið og dagskrá þess má finna á þingvef AN.