47. þing Alþýðusambands Íslands verður haldið dagana 14. til 16. október 2026 á Hilton Reykjavík og í tilefni af því verður haldið málþing, opið öllum, miðvikudaginn 14. október milli kl. 10 og 13 í hátíðarsal Hilton Reykjavík og í beinu streymi. Yfirskrift þingsins að þessu sinni er „Framtíð vinnu og verkalýðsbaráttu“. Þar verður horft fram á veginn og rætt hvernig verkalýðshreyfingin ætlar að mæta þeim áskorunum sem fylgja tækni- og loftslagsbreytingum.
Meðal ræðumanna eru Mariana Mazzucato, prófessor við University College London og einn þekktasti hagfræðingur samtímans, og Luc Triangle, aðalframkvæmdastjóri Alþjóðasambands verkalýðsfélaga (ITUC), sem er málsvari um 200 milljóna launafólks um allan heim. Bæði flytja þau fjarerindi. Rætt verður um hvernig gervigreind mun breyta störfum og réttindum launafólks, hvort hún skapi ný tækifæri eða nýjan ójöfnuð, og hvaða möguleika fólk á Íslandi hefur til að bæta kjör sín milli kynslóða.
Hvenær: Miðvikudaginn 14. október kl. 10:00–13:00. Húsið opnar 09:30
Hvar: Hátíðarsalur Hilton Reykjavík, Suðurlandsbraut 2
Aðgangur: Opið öllum – léttar veitingar í boði
Erindi flytja |
||||||||||||
|
Mariana Mazzucato, prófessor við UCL (fjarerindi) Prófessor í hagfræði nýsköpunar og almannavirðis við University College London og stofnandi Institute for Innovation & Public Purpose. Höfundur bókanna The Entrepreneurial State, Mission Economy og The Common Good Economy (2026) og ráðgjafi stjórnvalda og alþjóðastofnana víða um heim. Huginn Freyr Þorsteinsson, vísindaheimspekingur Hvernig lifum við gervigreindina af? Doktor í vísindaheimspeki frá Bristol-háskóla og einn höfunda skýrslu stjórnvalda um Ísland og fjórðu iðnbyltinguna (2019). Hann er stjórnarformaður Vinnumálastofnunar. Ragna Kemp Haraldsdóttir, dósent við Háskóla Íslands Gervigreind og BIAS – ný tækifæri, nýr ójöfnuður? Dósent í upplýsingastjórnun á Félagsvísindasviði HÍ. Rannsóknir hennar snúa meðal annars að aðgengi, öryggi og miðlun upplýsinga, upplýsingaóreiðu og gervigreind. Emil Dagsson, hagfræðingur Tekjuhreyfanleiki milli kynslóða á Íslandi Hagfræðingur hjá Seðlabanka Íslands og doktorsnemi við Háskóla Íslands, þar sem hann rannsakar hreyfanleika tekna, menntunar og auðs milli kynslóða. Luc Triangle, aðalframkvæmdastjóri ITUC (fjarerindi) Hefur frá 2023 leitt Alþjóðasamband verkalýðsfélaga, sem er málsvari um 200 milljóna launafólks í 170 löndum. Áður var hann framkvæmdastjóri industriAll Europe. |
||||||||||||
Dagskrá |
||||||||||||
Guðmundur Steingrímsson stýrir pallborðsumræðum. |
Æðsta vald í málefnum ASÍ er í höndum þinga ASÍ sem haldin eru á tveggja ára fresti. Hvert aðildarfélag á rétt á að senda a.m.k. einn fulltrúa á þing sambandsins. Eining-Iðja á rétt á að senda 9 fulltrúa á þingið, en á það eiga rétt á að mæta þrjú hundruð fulltrúar launafólks frá tæplega 50 stéttarfélögum af öllu landinu. Á þinginu verður stefna sambandsins til næstu tveggja ára mörkuð auk þess sem ný forysta verður kjörin. Þá mun þingið fjalla um þau verkefni og áskoranir sem ASÍ, aðildarfélögin og launafólk standa frammi fyrir nú og í næstu framtíð og hvernig á að takast á við þær út frá grunngildum og baráttu verkalýðshreyfingarinnar.
Nánari upplýsingar um þingið og dagskrá er að finna á þingvef 47. þings ASÍ.