639 umsóknir um orlofskosti sumarsins

Í gær, þriðjudaginn 2. apríl, rann út frestur til að skila inn umsóknum fyrir sumarið um orlofsíbúð, orlofshús eða “Orlof að eigin vali.”  Til félagsins bárust 639 umsóknir og er vinnu við að fara yfir þær lokið og búið að úthluta. 

Búið er að senda tölvupóst til þeirra félagsmanna sem að sóttu um orlofskost sumarið 2024. Ef þú sóttir um en ekki fengið svar frá félaginu þá skaltu hafa samband. Pósturinn gæti hafa lent í ruslpósti eða þá að rangt eða "gamalt" netfang er skráð hjá okkur.

Þeir félagsmenn sem fengu úthlutað þurfa að ganga frá greiðslu í síðasta lagi 15. apríl nk. Eftir þann tíma er litið svo á að viðkomandi ætli ekki að nýta sér orlofskostinn og dettur því pöntunin út.

Þeir sem fengu úthlutað þurfa að skrá sig inn á orlofsvef félagsins til að greiða, þar á forsíðu má finna hlekkinn Hér getur þú skoðað og greitt fyrir þínar umsóknir

Því miður er alltaf eitthvað um að ekki sé hægt að verða við óskum allra. Eins og áður segir bárust 639 umsóknir, 535 fengu samþykkt sitt val, þar af voru 275 vegna orlofs að eigin vali. 

  • 17. apríl 2024 verður opnað á netinu fyrir það sem enn verður laust. Þá gildir fyrstur kemur, fyrstur fær. Einnig verður hægt að hafa samband við skrifstofur félagsins til að fá upplýsingar um lausar vikur.  

Punktakerfi
Til þess að gæta sem mestrar sanngirni við úthlutun orlofshúsa og orlofsíbúða notar félagið punktakerfi sem þykir hafa reynst vel. Hver félagsmaður vinnur sér inn einn punkt fyrir hvern mánuð sem hann greiðir til félagsins. Engu máli skiptir hve há upphæð félagsgjaldsins er í hverjum mánuði. Þeir sem síðan hafa safnað flestum punktum þegar kemur að úthlutun ganga fyrir þegar mikil ásókn er í húsin. Þegar félagsmaður fær úthlutað tíma í orlofshúsi dregst tiltekinn punktafjöldi frá inneign viðkomandi þannig að tryggt er að þeir sem fá úthlutað dvöl í orlofshúsi eru ekki áfram efstir á blaði, en halda þó auðvitað áfram að safna sér punktum fram að úthlutun næsta árs með því að greiða félagsgjöld.

Frádráttur orlofspunkta er mismunandi eftir tímabilum og eftir því hvað er leigt. Ekki eru dregnir frá punktar að vetri til.

  • 18 punktar í frádrátt:
    • Fyrir Orlof að eigin vali.
  • 24 punktar í frádrátt:
    • Fyrir fyrstu tvær og síðustu sumarvikuna.
  • 36 punktar í frádrátt:
    • Fyrir aðrar sumarvikur