8. apríl er lokadagur til að borga orlofshús og íbúðir

Minnum á að félagsmenn sem fengu úthlutað orlofsíbúð eða orlofshúsi næsta sumar þurfa að ganga frá greiðslu í síðasta lagi 8. apríl 2026.

Búið er að senda greiðsluhlekk til þeirra sem fengu orlofshús eða íbúð. Einnig er hægt að fara inn á Mínar síður og greiða þar.

Ef eitthvað er óljóst er síminn á skrifstofum félagsins 460 3600.

Mánudaginn 13. apríl kl. 12.00 opnar fyrir alla í „fyrstir koma, fyrstir fá“. Þá er opnað fyrir þær vikur sumars sem eftir verða.