9. þing SGS hefst á morgun

9. þing Starfsgreinasambands Íslands fer fram dagana 25. til 27. október nk. á Hótel Natura í Reykjavík. Þingið hefur æðsta vald í málefnum sambandsins og þar eru lagðar línurnar í kjaramálum og starfsemi sambandsins til næstu tveggja ára. Á þingið í ár mæta alls 135 fulltrúar frá 18 aðildarfélögum sambandsins, þar af 20 frá Einingu-Iðju. Fjórir af fimm fulltrúum á kjarasviði félagsins verða á þinginu og því verður lágmarksþjónusta á kjarasviði á meðan þingið stendur yfir.

Dagskrá þingsins verður með hefðbundnu sniði en öll helstu gögn og upplýsingar um þingið eru aðgengilegar á sérstökum þingvef.

Miðvikudagur 25. september
Kl. 15:00 Setning og ávörp gesta
   Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra
   Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ
   Vilhjálmur Birgisson, formaður SGS
Kl. 16:00 Kosning þingforseta og ritara, kynning á þingvef, álit kjörbréfanefndar, niðurstöður nefndanefndar 
Kl. 16:30 Þingi frestað

Fimmtudagur 26. september 
Kl. 09:00 Kynning á nefndarstörfum
   Kjara- og byggðamál
   Lífeyrismál
   Húsnæðismál
   Skipulag og innra starf
Kl. 09:10 Lög SGS og þingsköp SGS (kynning á tillögum laganefndar)
Kl. 09:30 Skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra SGS og ársreikningar sambandsins 2021 og 2022
Kl. 10:15 Þróun og horfur í kjaramálum – Róbert Farestveit, sviðsstjóri hagfræði- og greiningarsviðs ASÍ
   -Umræður um kjaramál
Kl. 11:45 Brýning að lokinni kvennaráðstefnu – Guðrún Margrét Guðmundsdóttir, jafnréttisfulltrúi ASÍ
Kl. 12:00 Hádegishlé
Kl. 13:00 Staða félagsfólks aðildarfélaga SGS - Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörðu
   -Umræður
Kl. 14:00 Nefndarstörf hefjast
Kl. 17:00 Þingi frestað 
Kl. 19:00 Þingveisla

Föstudagur 27. september
Kl. 9:00 Afgreiðsla ályktana
   Lagabreytingar (umræða og afgreiðsla)
   Afgreiðsla starfs- og fjárhagsáætlunar
   Ákvörðun um skatthlutfall
 
Kl. 11:00 Kosningar
   Kosning formanns SGS 
   Kosning varaformanns SGS 
   Kosning aðalmanna í framkvæmdastjórn SGS
   Kosning varamanna í framkvæmdastjórn SGS 
   Kosning endurskoðenda og félagslegra skoðunarmanna reikninga 
   Kosning fastanefnda (Laganefnd og Kjörnefnd) 
 
Kl. 12:30 Þingslit