Á annað hundrað félagsmenn mættu á fundinn í Hofi

Á annað hundrað félagsmenn mættu á fundinn sem fram fór í Hofi
Á annað hundrað félagsmenn mættu á fundinn sem fram fór í Hofi

Í gær hélt félagið kynningarfundi um nýjan kjarasamning við sveitarfélögin á Grenivík og á Akureyri. Mjög góð mæting var á fundina og urðu góðar umræður um þennan nýja samning. Á morgun verða kynningarfundir á Dalvík og í Fjallabyggð. Búið var að auglýsa að fundirnar sem verða á morgun yrðu í dag, þriðjudag, en Björn formaður var kallaður til Reykjavíkur í dag þar sem samninganefnd SGS var kölluð saman til fundar til að fara yfir hugmyndir vinnuhóps sem skipaður var til að ræða vaktavinnu í tengslum við yfirstandandi kjaraviðræður.

Þessir fundir eru fyrir félagsmenn sem starfa hjá sveitarfélögunum því ekki er enn búið að semja fyrir þá sem starfa hjá ríkinu. Allir sem starfa eftir samningnum fá sendan kynningarbækling frá SGS.

Miðvikudagur 29. janúar

  • Dalvík kl. 17 í safnaðarheimili Dalvíkurkirkju. 
  • Fjallabyggð kl. 20 á skrifstofu félagsins Eyrargötu 24b. 

Rafræn atkvæðagreiðsla
Atkvæðagreiðslan stendur yfir frá kl. 12:00 mánudaginn 3. febrúar til kl. 12:00 sunnudaginn 9. febrúar.

Félagsmenn sem ekki fá kjörgögn í hendur og starfa eftir kjarasamningnum geta mætt á einhverja af skrifstofum félagsins og kært sig inn á kjörskrá.

Samningurinn gildir frá 1. janúar 2020 til 30. september 2023.

Helstu atriði samningsins, sem taka gildi ef hann verður samþykktur, eru sem hér segir:

  • Laun hækka um 90.000 kr. á tímabilinu 1. janúar 2020 til 1. janúar 2022. Þann 1. janúar 2023 hækka laun í samræmi við hækkanir á almennum vinnumarkaði.
  • Lágmarksorlof hjá öllum starfsmönnum verður 30 dagar.
  • Markviss skref til styttingar vinnuvikunnar. Frá 1. janúar 2021 styttist vinnuvikan um samtals 65 mínútur fyrir fólk í fullu starfi.
  • Vegna þess hversu lengi það hefur dregist að gera kjarasaming fá félagsmenn greidda eingreiðslu, upp á samtals 195.000 kr., miðað við fullt starf tímabilið 1. apríl til 31. desember 2019. Til frádráttar kemur 125.000 kr. innágreiðsla frá því í október 2019.
  • Persónuuppbót sem greiðist 1. maí ár hvert og nemur 50.450 kr. fyrir fullt starf árið 2020.
  • Desemberuppbót hækkar úr 115.850 kr. árið 2019 í 124.750 kr. árið 2022.
  • Launagreiðandi greiðir mánaðarlega 1,5% af heildarlaunum í félagsmannasjóð. Úthlutun úr sjóðnum verður 1. febrúar ár hvert. Starfsmaður í fullu starfi fær því kr. 61.000 við næstu útborgun.

Á næstu mánuðum verður lögð vinna í að leiðrétta og endurskoða fyrirkomulag ráðninga tímavinnufólks. Þá verður stofnaður sérstakur Félagsmannasjóður með það markmið að stíga skref til jöfnunar lífeyrisréttinda milli starfsmanna á almennum vinnumarkaði og opinberra starfsmanna. Atvinnurekandi greiðir mánaðarlegt framlag í sjóðinn sem nemur 1,5% af heildarlaunum félagsmanna og er úthlutað úr sjóðnum 1. febrúar ár hvert. Fyrsta úthlutun úr sjóðnum verður nú í ár og fá allir félagsmenn í fullu starfi greiddar 61.000 kr. Starfsmenn sem eru ekki í fullu starfi fá greiðslu miðað við starfstíma og starfshlutfall.

SGS mun áfram taka fullan þátt í starfshópi aðila opinbera vinnumarkaðarins sem fjallar um fyrirkomulag vaktavinnu og starfskjör vaktavinnufólks. Nái starfshópurinn niðurstöðu um frekari breytingar munu samningsaðilar taka upp viðræður um með hvaða hætti þær verða innleiddar.  Hægagangurinn sem hefur verið í þeirri vinnu er alfarið á ábyrgð samningarnefndar ríkisins og ekki hægt bíða þeirrar niðurstöðu til að okkar fólk fái löngu tímabærar launahækkanir.

Tekið er upp nýtt ákvæði að félagsmenn sem starfað hafa samfellt í 3 ár geta fengið launað leyfi í samtlas í þrjá mánuði til að stunda viðurkennt starfsnám.