Á morgun er síðasti dagur til að sækja um í sjúkra- og fræðslusjóði

Greiðsla dagpeninga og styrkja vegna desembermánaðar fer fram 29. desember nk. og verður það síðasti greiðsludagur á þessu ári.

Skila þarf inn umsókn og gögnum til félagsins í síðasta lagi á morgun, 20. desember, til að ná þessari útborgun. Það sem kemur inn eftir þann tíma verður greitt í lok janúar 2024.

Reikningar og kvittanir eru skráð á það ár sem gögn berast. Dæmi: Þú ferð til sjúkraþjálfara í desember en kemur með kvittun í janúar, þá skráist þetta í janúar, s.s. árið eftir að þú ferð í tíma og fer af rétti þess árs. 

ATHUGIÐ! Nú er hægt að sækja rafrænt um styrki inn á Mínum síðum félagsins

Upplýsingar um sjúkrasjóð og fræðslustyrki