Á morgun er síðasti dagur til að skila inn gögnum

Vert er að minna á að í desember þarf að skila inn gögnum fyrr en venjulega til sjúkrasjóðs Einingar-Iðju og vegna fræðslusjóða félagsins.

Skila þarf gögnum til félagsins í síðasta lagi á morgun, 18. desember, til að ná þessari útborgun. Það sem kemur inn eftir þann tíma verður greitt í lok janúar 2020.

Greiðsla dagpeninga og styrkja vegna desembermánaðar fer fram 30. desember nk. og verður það síðasti greiðsludagur á þessu ári.