Aðalfundir deilda 2020 - akstur í boði!

Aðalfundir deilda félagsins fara fram á 4. hæð Alþýðuhússins á Akureyri næsta fimmtudag, 6. febrúar …
Aðalfundir deilda félagsins fara fram á 4. hæð Alþýðuhússins á Akureyri næsta fimmtudag, 6. febrúar kl. 19:30.

Aðalfundir deilda félagsins árið 2020 fara fram á 4. hæð Alþýðuhússins á Akureyri næsta fimmtudag, 6. febrúar kl. 19:30. Fyrst verður sameiginlegur fundur allra deilda þar sem flutt verður erindi. Að því loknu munu deildirnar hver fyrir sig halda sinn aðalfund. 

  • Á fundinum verður kosið til tveggja ára um varaformann og þrjá meðstjórnendur í hverri deild fyrir sig.
    • Í Iðnaðar- og tækjadeild þarf líka að kjósa tvo meðstjórnendur til eins árs.
    • Í Matvæla- og þjónustudeild þarf líka að kjósa einn meðstjórnanda til eins árs.
    • Í Opinberu deildinni þarf líka að kjósa einn meðstjórnanda til eins árs.

Veitingar í boði 

 

ATH! Boðið verður upp á akstur til Akureyrar

Þeir sem ætla að fá far með rútunni sem fer frá Siglufirði verða að láta Möggu vita í síma 460 3620 fyrir kl. 13 sama dag og fundurinn fer fram. Rútan leggur af stað frá:

  • Siglufirði kl. 18:00, frá skrifstofu félagsins.

  • Ólafsfirði kl. 18:15, frá Tjarnarborg

  • Dalvík kl. 18:30 frá skrifstofu félagsins 

Sameinast verður í bíla frá Grenivík og Hrísey:

  • Grenivík: Hringið í Róbert svæðisfulltrúa í síma 844 5729 og látið vita ef þið ætlið að fá far.

  • Hrísey: Hringið í Guðrúnu svæðisfulltrúa í síma 692 4910 og látið vita ef þið ætlið að fá far.