Aðalfundir deilda 2023

Aðalfundir deilda félagsins árið 2023 fara fram á Hótel KEA á Akureyri miðvikudaginn 8. febrúar nk. kl. 19:30. Mætið á fund, verið virk í deildinni ykkar! Veitingar í boði.

Félagið skiptist í þrjár starfsgreinadeildir

Fyrst verður sameiginlegur fundur allra deilda þar sem flutt verður erindi. Að því loknu munu deildirnar hver fyrir sig halda sinn aðalfund. 

Í ár verður kosið til tveggja ára um formann, ritara og þrjá meðstjórnendur í hverri deild fyrir sig. Einnig þarf að kjósa tvo meðstjórnendur til eins árs í Opinberu deildinni.

ATH! Boðið verður upp á akstur til Akureyrar

Þeir sem ætla að fá far með rútunni sem fer frá Siglufirði verða að láta vita í síma 460 3620 fyrir kl. 13 sama dag og fundurinn fer fram.

  • Siglufjörður, rúta kl. 18:00, frá skrifstofu félagsins.
  • Ólafsfjörður, rúta kl. 18:15, frá Tjarnarborg.
  • Dalvík, rúta kl. 18:30, frá skrifstofu félagsins.

Sameinast verður í bíla frá Grenivík og Hrísey

  • Heyrið í svæðisfulltrúa eða varasvæðisfulltrúa