Aðalfundir deilda hefjast kl. 18:30 í dag

Aðalfundir deilda félagsins árið 2024 fara fram á Hótel KEA á Akureyri í dag, fimmtudaginn 8. febrúar, kl. 18:30. Mætið á fund, verið virk í deildinni ykkar! Veitingar í boði. ATHUGIÐ! fundir munu hefjast einni klst. fyrr en síðustu ár.

Félagið skiptist í þrjár starfsgreinadeildir

  • Iðnaðar- og tækjadeild
  • Matvæla- og þjónustudeild
  • Opinberadeild

Fyrst verður sameiginlegur fundur allra deilda þar sem flutt verður erindi og boðið upp á veitingar, súpu og brauð. Að því loknu munu deildirnar hver fyrir sig halda sinn aðalfund. 

  • Í ár verður kosið til tveggja ára um varaformann og þrjá meðstjórnendur í hverri deild fyrir sig.
  • Einnig þarf að kjósa til eins árs formann og einn meðstjórnanda í Matvæla- og þjónustudeildinni. 

Mætið á fund, verið virk í deildinni ykkar!